19.11.2008 | 13:30
Ég á afmæli í dag :)
halló..
Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag, ég afmæli í dag :):) ég er eins og lítill krakki sem finnst alltaf gaman að afmælinu sínu :) og svo var alveg ógó gaman að sjá allar kveðjurnar á facebookinu mínu, það var æði :):)
Reyndar er ég nú samt heima veik, voðalega týpískt þar sem að ég afmæli, á seinasta ári fór ég til tannsa á afmælisdaginn og nú er ég með hita :s sem er öööömurlegt en facebookin mín yljaði mér allverulega :)
Annars er mest lítið að frétta, Sigga mín átti afmæli 5 nóvember og hélt uppá það með heljarinnar afmælisveislu þann 8.nóv með limmó í bæinn og öllu tilheyrandi og það var rosalega gaman :):) hlakka til að djamma aftur með þér skvís :)
annars læt ég þetta bara gott heita, er frekar slöpp svo að ég ætla aftur uppí rúm :)
chao
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2008 | 14:53
Október að klárast..
halló..
jæja, þá er orðið nokkuð langt síðan maður bloggaði seinast, alveg þó nokkuð mikið búið að gerast síðan þá og kannski maður aðeins skrifi um þaðhér...
Fyrir það fyrsta þá var kistulagning þann 14.okt og svo var jarðarförin þann 18.okt og gekk hún rosalega vel, veðrið var æðislegt og gekk bara allt mjög vel.. Ég var kistuberi ásamt Þresti, Erlu, Íris, Eiríki, Ómar, Nonna og Daníel og hefði ég ekki viljað sleppa því..
Svo hafa bara dagarnir liði svona hægt og rólega áfram, það var vinnuferð á Selfoss í seinustu viku frá fimmtudegi fram á föstudag og var það bara nokkuð gaman fyrir utan vibba beddanna sem maður þurfti að sofa á, brr... 
Svo varð ég eftir á Selfossi hjá Kollu og Gumma og Þröstur kom til okkar, skelltum okkur á ball með Buffinu á laugardagskvöldið í Hvíta húsinu og það var bara rosalega gaman, dansaði helling og skemmti mér rosalega vel
Var reyndar frekar þunn í gær, meira reyndar þreytt heldur en þunn en það var allavega voða gott að koma heim í sitt eigið rúm 
Er svo reyndar heima í dag, vaknaði alveg að dreeepast í maganum og svo er hausinn á mér fastu til vinstri, hata að geta ekki hreyft mig eins og mér sýnist!! En ég ætla nú í vinnuna á morgun, ég verð þá bara að reyra á mér hálsinn ef mér verður enn illt!
enég ætla bara að láta þetta duga í bili, bara svona aðeins að sýna lífsmark :)
chao
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.10.2008 | 00:06
9. október...
halló...
Dagurinn í dag var einn sá alerfiðasti sem ég hef upplifað á minni stuttu ævi... Reynir Gunnarsson, tengdapabbi minn, lést í dag, Edda, Erla, Íris, Þröstur og ég vorum öll hjá honum seinustu stundirnar og fengum að vera hjá honum, og vorum við svo fegin því þegar þetta var yfirstaðið, loksins er Reynir frjáls úr þessum sjúka líkama og kominn á betri stað, þetta er auðvitað ótrúlega sárt og fjölskyldan er eiginlega í molum þessa stundina en við erum líka mjög fegin að elsku tengdapabbi sé búinn að finna frið.
Hvíl í friði elsku tengdapabbi ...
Þrösturinn minn átti svo afmæli líka í dag, þó svo að það hafi ekki verið efst í huga hans í dag, hann fékk þá allavega smá pakka frá okkur í dag svona aðeins til að létta lundina..
ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að skrifa núna, er eiginlega bara tóm, er sorgmædd yfir því að þessi góði maður sé farinn frá okkur, alltof snemma, og ég sakna hans rosalega og hvað þá öll hin..
ég læt þetta duga
kv.
Sylvía
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.9.2008 | 21:19
blogg,blogg.. Who's there?
halló..
Jæja, það er ekkert smá sem tíminn líður! Það eru aðeins 14 vikur eftir af þessu ári, mér finnst ég nýorðin 16
Fékk þvílíkt nostalgíukast um daginn, langaði bara að hverfa aftur í tímann þar sem maður hékk bara með vinum sínum og einu áhyggjurnar voru hver ætti að redda áfenginu og hvað maður ætti að segja mömmu, hehe
good old times...
Annars er reyndar ekki mikið að frétta, fór reyndar til ógeðslegs læknis um daginn, hef sjaldan ef nokkurn tíman orðið svona reið, en ég fer nú ekki nánar í þetta hér..
Svo voru líka bara réttir í gær, það var bara fínt fyrir utan vibba veðrið! Dró alveg slatta af rollum og svo náttla tók lengstan tímann að koma þessu heim og svona! Ætlaði að vera heví dugleg að halda mataræðinu þennan dag og var með mat í boxum og svona en þegar maður var búin að sitja í traktornum allan daginn, búinn með skammtinn og orðinn ískaldur og þreyttur og það eina sem var ætt þarna var brauðsneið með osti og kókómjólk þá gafst maður upp, úff
En svona er það bara, þýðir ekkert að grenja yfir því, þessi dagur bauð bara ekki upp á annað..
Veit eiginlega ekkert hvað ég á að skrifa hérna akkúrat núna, hef eiginlega ekki gert neitt merkilegt seinustu daga, frekar en venjulega.. Er strax byrjuð að telja niður í kanarí þó það séu 16 vikur í það... Svo verðum við kellurnar að fara að skipuleggja einhverja útlandaferð saman og skilja kallana eftir heima
Allar tillögur og uppástungur vel þegnar!
en læt þetta duga í bili, lofa að blogga aftur bráðum :)
chao
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.9.2008 | 22:41
Ball og annað stuð :)
halló
jæja þá er komin tími á blogg! Vill byrja á að óska handboltastrákunum til lukku með silfrið, þó mér hafi fundist þetta rosalega tilstand þegar þeir komu heim allt of mikið og mér fannst líka engin ástæða til að veita riddaraorðu fyrir handboltaleik!
En anywho..
Svo eins og skrifaði í seinasta bloggi var staffapartý seinasta föstudag og bara ÚFF, það var sko stuuð!! Mjög góður tappi í flöskuna fram að jólum
Byrjuðum á að fara í mat til Drafnar í Laufás og þar var byrjað að sulla í áfengi! Ég hef sagt það áður og ég segi þar hér, leikskólakonur eru eins og verstu sjómenn þegar kemur að drykkju, magnið sem þær þola er alveg ótrúlegt!!
Eftir mikla drykkju og mikið stuð kom rútan sem að burraði okkur upp í rétt á Geirmund og þvílíkt magn af fólki í svona litlu húsi!!
Hef aldrei séð annað eins og hitinn þarna inni var svaðalegur
Það alveg lak af manni svitinn, fínt líka að svitna áfenginu en það var t.d rúm kippa af bjór, mickeyfinn skot, tópasskot, vodkafyllt melóna og ýmislegt annað!
Þegar við komum heim smurði ég mér líka brauðsneið með SÚKKULAÐISMJÖRI og fékk mér mjólk með! Fórum að sofa um hálf5, vaknaði aftur um 8 (fyrsta hugsunin: UUUGGHHH, ég er enn full
), fór aftur í bælið, lá rotuð til 1 og þá alveg þynnkulaus! Sem sagt frábært djamm með fullkomnum endi
Takk fyrir kvöldið allir saman!!
Fórum svo suður á laugardag, út að borða og keilu með Siggu Lóu, Ólafi og Gylfa, mjög kósý og langt síðan maður hefur hitt þau, alltaf gaman :)
Annars er voða lítið að frétta, bara alltaf sama rútínan hér á bæ, var reyndar orðin voða föst í sömu þyngdunum í þreki en ég er bara búin að vera ON FIRE eftir helgina og þyngi í hverri æfingunni á eftir annarri
mjög gaman :)
En ég læt þetta duga, kommenta...!
chao
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.8.2008 | 22:41
Handbolti og Geirmundur :)
halló..
jæja, bloggblogg
Mest lítið að frétta héðan, bara æfi eins og vitleysingur eins og alltaf og er svo í vinnunni og fjósinu þar á milli svo að maður hefur voða lítinn tíma fyrir sig eða einhvern annan þessa dagana! Fékk reyndar 2 daga frí í fjósinu, ekki eitthvað skemmtifrí neinei! Ég vaknaði semsagt á þriðjudagsmorguninn og þá var hausinn á mér fastur til vinstri, voða gaman allt saman 
Datt svo fyrir algjöra tilviljun einhvern morguninn í þessari viku, man ekki hvaða dagur það var, að akkúrat þegar ég fór í þrek um 7-leytið þá var seinni hálfleikur í handboltaleiknum Ísland-Pólland akkúrat að byrja, ég naut mín alveg í botn að brenna við leikinn og datt alveg inní hann! Sá svo reyndar líka leikinn í dag þar sem Íslendingar unnu Spán 36-30, ótrúlega flott hjá strákunum og ég bíð spennt eftir úrslitaleiknum, þeir eiga svo innilega skilið að vinna! Er líka alveg með það á hreinu a ef að íslendingar væru ekki með svona rosalega góðan markvörð þá væru þeir ekki þar sem þeir eru í dag 
Svo er reyndar djamm fram undan hjá mér, var reyndar búin að lofa sjálfri mér að hætta að drekka þar sem maður er að eyða peningum í fæðubótarefni og endalausum tíma við að koma sér í þrusuform svo ekki sé nú talað um bragðlausa hollustumatinn svo að ég er ekki alveg að tíma að eyðileggja árángurinn um hverja helgi með fylleríi, eeeeenn þar sem að þetta er nú búið að vera á planinu síðan í byrjun júlí,þá ætla ég nú að leyfa mér þetta eina fyllerí og svo er bara engin drykkja fyrr en á Kanarí dagana 14.jan til 28.jan 
Allavega er sem sagt staffapartý þann 29.ágúst, matur og skemmtun heima hjá einni okkar og svo ekki sé nú talað um drykkju, svo kemur rúta fyrir okkur leikskólakellingarna og keyrir okkur uppí þverárrétt þar sem við ætlum að skella okkur á geirmundarball
Og ég er bara farin að hlakka til því það er svo ÓGEðSLEGA GAMAN að djamma með leikskólakellunum 
En þetta verður bara látið duga í bili, kem allavega með blogg eftir leikinn á sunnudag!
ÁFRAM ÍSLAND!
chao..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.8.2008 | 23:19
Nýtt blogg:)
sælar..
jæja, ég gafst uppá bloggar.is, heví sljótt og leiðinlegt kerfi og mér leist bara mjög vel á þetta kerfi!
Um að gera að nýta tímann þegar maður er einn heima, kallinn er víst á einhverju sumbli í höfuðborginni, týpískt að hann fari að djamma í bænum þegar ég hætti að drekka!
karlmenn...
En ég lifi það nú af, bara búin að nýta tímann og taka til, enda veitti ekki af! Tók gólfin alveg í gegn og skúraði tvisvar yfir! Er mjög sátt við sjálfa mig núna 
Svo er ég líka að reyna að ákveða mig hvað ég á að gera á morgun, málið er að mig langar rosalega á gaypride gönguna en ég hef engan til að fara með
Er að spá í að auglýsa eftir vinum á svipuðum aldri sem búa hér nálægt, ég þekki nánast engan lengur í borgarnesi, bara einhverja svona kunningja og þannig dæmi, frekar sorglegt í rauninni
En það jafnast hvort eð er enginn á við beyglurnar mínar tvær á suðurlandinu, you know who you are 
Annars er nú ekkert merkilegt búið að ske hér, er byrjuð að vinna aftur og er líka byrjuð i sjúkraþjálfun, byrjaði í morgun, er víst með bólgur í vöðvafestunni í mjöðminni vinstra megin og það er ekki gott! Fór til Halldóru sjúkraþjálfara og hún sagði að þetta væri bara týpísk íþróttamannaeinkenni og setur hún hljóðbylgjur og á þetta og nuddar svo ég verð hjá henni einhver skipti, og vonandi lagast þetta bara sem fyrst 
En ég ætla bara að hætta núna og skríða í bælið og lesa ísfólkið!
góða nótt
adios
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Sylvia Ósk Rodriques
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 2725
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

gralli-gormur
gunnfridur




